Sérrit Ritsins um ástarrannsóknir
Tryllingurinn í þeim sem er frjór og þrunginn frjómagni gagnvart hinu fagra stafar áreiðanlega af því að mikilli þjáningu er af honum létt.
– Úr Ástarmeistaranum eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur
Ritið um ástarrannsóknir er komið út í ritstjórn Torfa H Tuliniusar og Berglindar Rósar Magnúsdóttur. Forsíðan er prýdd málverki eftir Kristín Gunnlaugsdóttir en um verk hennar skrifar Hlynur Helgason fróðlega grein. Silja Bára Ómarsdóttir og Brynhildur Björnsdóttir skrifa um félagslegt taumhald rómantískrar ástar. Berglind skrifar um tilhugalíf fráskilinna framakvenna, Íris Ellenberger fjallar um samkynhneigðar ástir í kringum Kvennaskólann í upphafi síðustu aldar. Sólveig Anna Bóasdóttir tekur til umfjöllunar réttindabaráttu samkynhneigðra og afstöðu kirkjunnar til hennar og Torfi Tulinius fjallar um tilfinningaraskaða karlmenn í verkum Michel Houellebecq. Enn fremur þýddu ritstjórar lykilgrein eftir Önnu Guðrúnu Jónasdóttur, frumkvöðul ástarrannsókna, um ástarkraftinn. Sjá Ritið í heild sinni hér https://ritid.hi.is/index.php/ritid
Efnisyfirlit
Formáli
Tofi Tulinius, Berglind Rós Magnúsdóttir, Guðrún Steinþórsdóttir, Sigrún Margrét Guðmundsdóttir. Nýtt þekkingarsvið: Ástarrannsóknir
Þýðing
Anna Guðrún Jónasdóttir. Hvers konar kraftur er ástarkrafturinn? (What kind of power is love power?) – í þýðingu ritstjóra
Þema
Brynhildur Björnsdóttir og Silja Bára Ómarsdóttir. Á valdi ástarinnar: markaðslegur tilgangur og félagslegt taumhald hugmyndarinnar um rómantíska ást
Torfi Tulinius. Tengslaröskun og tilfinningakapítalismi. Um kynlíf, nánd og sambandsleysi í skáldsögum Michel Houellebec
Hlynur Helgason. Frá ást til ónota – Um Kristínu Gunnlaugsdóttur.
Berglind Rós Magnúsdóttir. „Ég hef engan áhuga á því að vera í sambandi, ég hef bara áhuga á ást.“ Tilhugalíf fráskilinna kvenna á tímum sjónrænnar auðvaldshyggju
Íris Ellenberger. Ég er alveg í öðrum heimi: Kvennaskólinn í Reykjavík, kvennahreyfingin og hinsegin ástir meðal kennslukvenna um aldamótin 1900
Sólveig Anna Bóasdóttir. Réttlát ást. Barátta fyrir viðurkenningu samfélags og kirkju á ást, kynverund og löglegri sambúð homma og lesbía á tveimur öldum