Uncategorized

Rýnt í ástina í Hall­gríms­kirkju

Ný há­degis­við­burða­röð Hins ís­lenska ástar­rann­sóknar­fé­lags hefst í Hall­gríms­kirkju í dag þar sem ástin verður skoðuð frá ýmsum sjónar­hornum. Ástin verður í brennidepli í Hallgrímskirkju í hádeginu í dag en þá hefst viðburðaröð þar sem félagsmenn í Hinu íslenska ástarrannsóknarfélagi kynna rannsóknir sínar og skrif um málefni ástarinnar. „Þetta eru allt fræðimenn með ólíkan bakgrunn sem …

Rýnt í ástina í Hall­gríms­kirkju Read More »

Ef þú giftist

Umsjónamaður: Brynhildur Björnsdóttir. Lögformlegur samningur um ást og uppvask Hjónabandið er allt í senn, samfélagslegur hornsteinn, stofnun ástarinnar og lögformlegur samningur um daglegt líf. Í fyrsta þætti Ef þú giftist er rætt um hjónabandið sem stofnun við Sigrúnu Olafsdóttur, prófessor í félagsfræði. Hrefnu Friðriksdóttur prófessor í hjúskaparrétti, Berglindi Rós Magnúsdóttur, prófessor um ástarrannsóknir og Sólveigu …

Ef þú giftist Read More »

Sérrit um ástarrannsóknir

Lestin á RÚV 3. Nóvember: Sérrit um ástarrannsóknir kemur út næsta mánudag hjá Hugvísindastofnun í ritstjórn Berglindar Rósar Magnúsdóttir og Torfa H. Tulinius. Sex fræðigreinar eftir sjö höfunda og þýdd grein um ástarkraftinn eftir Önnu Guðrúnu Jónasdóttur verða í opnum aðgangi á vefsíðu ritid.hi.is. Eins og Anna Guðrún bendir á þá skiptir ekki síður máli …

Sérrit um ástarrannsóknir Read More »

building, hall, abandoned

Arkitektúr ástarvalsins

Í nýjustu bók sinni „The end of love“ spyr menningarfélagsfræðingurinn Eva Illouz þeirrar mikilvægu spurningar hvernig þetta nútímaástand sem einkennist bæði af markaðshugsun á öllum vettvangi, og mögulegum sítengingum að öllum heiminum í gegnum tæknivædd samskipti, hafi breytt tilfinningum okkar og rómantískum tengslum. „Það eru fleiri fiskar í sjónum“ eru ekki aðeins upplyftandi huggunarorð lengur heldur teljanlegur raunveruleiki í formi lítilla síla á Tinder sem hægt er …

Arkitektúr ástarvalsins Read More »

red, rose, flower

Ástarkraftur og arðrán hans

Dr. Anna Guðrún Jónasdóttir, stjórnmálafræðingur setti fram kenninguna um „ástarkraftinn“ fyrir um 30 árum. Í doktorsritgerð sinni velti hún þeirri knýjandi spurningu fyrir sér af hverju konur væru undirskipaðar körlum þrátt fyrir jafnt aðgengi og jafnan rétt að valdavettvöngum samfélagsins. Með kerfisbundinni greiningu á gagnkynhneigðum ástarsamböndum þróaði hún kenninguna um ástarkraftinn. Mest af ósýnilegri tilfinningavinnu …

Ástarkraftur og arðrán hans Read More »

romance, lovers, happy

Hinn póstmóderníski síðnútími, ástin og einskisvalið

Kvíði, sjálfsmyndarkreppa, ístöðuleysi og streita einkenna hið póstmóderníska ástand, þar sem heimsmyndin hefur riðlast undan þunga hins kapítalíska síðnútíma.  Hefðbundnar stofnanir sem hafa haldið utan um tilfinningalífið, eins og kirkjan, hjónabandið og fjölskyldan, eru að leysast í sundur og markaðurinn hefur fengið lausan tauminn svo kapítalið geti flætt frjálst. Valmöguleikar í lífinu hafa margfaldast og …

Hinn póstmóderníski síðnútími, ástin og einskisvalið Read More »

Berglind Rós Magnúsdóttir stendur við vegg þar sem er mynd með textanum „Byltingin er rétt að byrja“

„Byltingin er rétt að byrja!“

Berg­lind Rós Magnús­dótt­ir seg­ir að fólk í góðu ástar­sam­bandi eyði tals­verðum tíma í að ala hvort annað upp og gefa af sér til hins án þess að ganga of nærri sér. Hún seg­ir ástar­bylt­ing­una rétt að byrja og að Covid-19, eða kófið eins og hún kall­ar ástandið, hafi fleytt um­hyggju-hag­kerf­inu upp á yf­ir­borðið. Berg­lind Rós …

„Byltingin er rétt að byrja!“ Read More »

lily of the valley, flowers, dew

Umhyggjuhagkerfið og arðrán ástarkraftsins

Við lifum á fordæmalausum tímum veirufaraldurs og þá er ýmislegt sett fram á samfélagsmiðlum, meðal annars jákvæðar áskoranir til að stytta stundir, peppa, gefa von, slá á neikvæðni, drepa tímann. Ein af þessum áskorunum felst í að efla kvennasamstöðu með því að setja mynd af sjálfri sér og tagga 50 aðrar konur. Statusinn er eftirfarandi: …

Umhyggjuhagkerfið og arðrán ástarkraftsins Read More »